Stokkablogg
20.02.2007 16:20:05 / ellerhur

Fæðing æsifrétta grúskara eins í Stockholm...

Í litlu herbergi í Stockholm situr grúskari einn og grúskar sem aldrei fyrr... Grúskarinn grúskar í bókum, bloggi, deitsíðu, photoshop og ljósakrónu... Grúskarinn ætti hinsvegar að slaka á áður en það bræðir úr heilasellum, heimilistækjum eða bara öllu húsinu og mér hennt út..8|

Ég er nefninlega búin að átta mig á því að ég gæti gert það að æfistarfi mínu að grúska, sama hvað fælist í því vafasama starfi, einhverja hugmyndir til að betrumbæta þennan "hæfileika" minn..:!: Þetta getur nú samt sem áður verið stór galli hef ég einnig áttað mig á, þar sem ég byrja á öllu mögulegu og þar myndast þetta svokallaða grúsk mitt.. Allt að verða vitlaust, svoleiðis þrifningar, útihlaup, steikingar og margt í gangi samtímis. Þannig að nýja takmarkið mitt áður en allt fer til ans... er að verða meira það sem sumir myndu kalla "markviss".. Byrja á einhverju og ljúka því áður en nýtt tekur við.. Þá get ég kannski lagt þessa margra ára baráttu við gleymsku að baki mér. Á það til að fólk springi úr hlátri þegar það stígur inn um þröskuldinn, hvað er í gangi... Og þar stend ég með ennþá úfnari hár en vanalega og eitthvað við það að springa.. Kannski ég hefði átt að verða einhverskonar uppfinningamaður... Eiga eitt svona "grúskherbergi"... Vísindastofu...:$ Já veröldin er skrítin staður eins og einhver sagði... Og finnst mér ég alltaf meir og meir vera að ná því... En samt engu nær:!:

Skólinn og lífið gengur bara vel... Brilliant hugmynd var að fæðast í dag... Sú hugmynd hljómaði á þann veginn að heimsækja Finnland í kringum þann 19. maí... Og kannski fatta glöggir að þá á sér hvorki meira né minna en Eurovision stað þar í Helsingborg.. Ennþá glöggari fatta það einnig að ég á afmæli daginn eftir8) Leggst þessi hugmynd allveg gríðarlega vel í mig enda verður "leynigestur" líklega mættur til Stockholms um það leyti.. Og get ég ekki hugsað mér betri afmælisveislu en brjálæðið sem á sér stað um þetta leyti.. Umvafin góðum vinkonum í púlsi evrópubúa þetta kvöld...:haha:

Einn góður drengur vildi meina það að allir íslendingar nema Hildur litu út eins og tröll sem mér fannst allavegana passa í mínu tilfelli....haaaaa... alls ekki fráleit samlíking

Þannig að litla grúskaratrollið ég kveð í bili

puss puss

 

 

 


» 13 hafa sagt sína skoðun

20.02.2007 15:56:34 / ellerhur

Velkomin/nn á BlogCentral

Þetta er fyrsta færslan þín á BlogCentral. Til að eyða henni eða breyta notar þú umsjónarvefinn sem þú kemst inná með því að smella á "Vefstjórn" hér í valmyndinni vinstra megin.

Inni í vefstjórninni getur þú skrifað nýjar færslur, breytt færslum eða eytt þeim.
Sama gildir um gestabók þar sem þú getur eytt færslum úr henni og haft yfirsýn yfir um leið þá sem skrifa í þína gestabók

Viljir þú hafa tengla á aðrar heimasíður getur þú auðveldlega bætt þeim við undir "Tenglar" í vefstjórninni.

Til að breyta útliti síðunnar og nota þau útlit sem eru í boði smellirðu á "Stillingar á síðu" sem finna má neðarlega í valmyndinni vinstra megin.

Viljir þú bæta við bloggurum á síðuna þína til að geta skráð sig sömuleiðis inná síðuna þína, þá ferðu í "Notendur" neðst í valmyndinni vinstra megin.

Undir aukahlutir getur þú bætt hinum ýmsu hlutum inná síðuna eins og t.d. niðurteljara, leit, dagatal og fleira.
Gangi þér vel að blogga,

Besti kveðjur, BlogCentral

» 0 hafa sagt sína skoðun


Gamalt blogg
RSS tengill